Til háborinnar skammar fyrir Sjálfstæðisflokkinn !!!

Þessi niðurstaða Þorgerðar Katrínar og fl. er til háborinnar skammar fyrir Sjálfstæðisflokkinn.  Ekki kæmi mér á óvart þótt fjöldi manna segi sig úr flokknum í kjölfarið.

Vonandi mun Bjarni Benediktsson hafa bein í nefinu til að taka á þessu fólki sem gengur þvert gegn stefnu landsfundar í sumar.

 

 


mbl.is Þjónar hagsmunum að ljúka Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Þvert á móti, nú vex trúverðugleiki ykkar Sjalla um 0,2 %

hilmar jónsson, 2.2.2011 kl. 16:09

2 Smámynd: Anna Björg Hjartardóttir

Hárrétt hjá þér Sigurður. Það má gera ráð fyrir fjölda úrsögnum og stofnun á nýjum flokki.

Anna Björg Hjartardóttir, 2.2.2011 kl. 16:41

3 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Því miður brást Bjarni Ben. algerlega.  Ef marka má viðbrögð fólks þá hefur hann misst mikinn trúverðugleika !!

Sigurður Sigurðsson, 2.2.2011 kl. 17:50

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Sigurður, ég skil þig ágætlega - en er það rétt að vera alveg "bókstafstrúar" - veit ekki - eftir allt sem runnið er nú til sjávar frá upphafi þessa máls þá hefur þó þetta áunnist - komumst við lengra eða viljum við fara dýpra í "holurnar" ?

verði þetta að veruleika þe að Icesave klárist svona - þá styð ég það - ég mun aftur á móti hugsa andstæðingum okkar í þessu uppgjöri þegjandi þörfina um aldur og ævi án alls æsings þó.... tja eða að mestu leiti - við verðu að halda áfram Sigurður .... áskil mér þó rétt til að skipta um skoðun ....

Jón Snæbjörnsson, 2.2.2011 kl. 18:29

5 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég er búinn að því Sigurður, sagði mig úr flokknum í morgun, skriflega.  Hef ekki geð í mér að styðja flokkinn lengur.

Tómas Ibsen Halldórsson, 3.2.2011 kl. 12:20

6 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Jón minn kæri:  Þetta mál snýst ekki um neina "bókstafstrú" - alls ekki.  Þetta snýst einfaldlega um rétt og rangt.   Ef við samþykkjum þennan samning þá erum við einfaldlega að samþykkja ranga niðurstöðu gagnvart í íslenzkum almenningi, gegn lægri greiðslum.

Alveg sömu röksemdir voru notaðar í fyrri samningunum, allt færi hér til andskotans ef við borguðum ekki reikninginn !

Langflestir lögfróðir menn eru á þeirri skoðun að við séum með unnið mál, bæði innlendir og erlendir.  Og munu Bretar né Hollendingar þora í mál vegna áhættunnar sem fylgir því gagnvart þeirra eigin bankakerfi.

Við sjáum bara til hvernig Bjarni kemur út á næsta landsfundi.  Vonandi, hans vegna, verður hann þá laus við bæði Icesave stimpilinn og Vafninginn góða, hver veit ??

Sigurður Sigurðsson, 5.2.2011 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband