VÍST orskaðirðu hrunið

Ó jú, Ingibjörg, þú gerðir það með undirlægjuhætti við útrásarfuglana, gagnrýnislaust, og með dyggri aðstoð Bessastaðabóndans.  Ekki reyna að þvo hendur þínar af þessu klúðri, það var margbúið að tyggja það í þig að bankakerfið væri að hruni komið, en þú hlustaðir ekki.  Meðvitunarleysi þitt birtist núna landsmönnum í skuldaklafa til margra ára.  Valdagræðgin sem hefur alltaf einkennt ykkur í Samfylkingunni á stóran þátt í því hvernig komið er fyrir íslenzkri þjóð.  Og fyrir alla muni, ekki klúðra meiru með því að troða okkur inn í ESB - sovétveldið nýja.  Þjóðin á eftir að rísa upp til varnar og segja NEI TAKK.


mbl.is Ingibjörg: Orsökin liggur í ofsafrjálshyggjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er nú Solla og Samfylkingin að þvo hendur sínar.  En aumkunarvert!  Gat nú skeð að Samfylkingarliðið stæði nú í biðröð við handvaskinn og þvæði hendur sínar af óhroðanum.

Höskuldur P. Magg. (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 18:10

2 Smámynd: ThoR-E

Grátbrosleg tilraun til hvítþvottar hjá Sollu og Samfylkingunni.

ThoR-E, 15.12.2008 kl. 18:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband