Legg allt mitt traust á Dorrit !!!

Því miður, eftir það sem á undan er gengið, er vilji Ólafs Ragnars væntanlega sá að undirrita þessi lög.  Það mun hann gera vegna pólitísks vinskapar við núverandi stjórnvöld.  Annars stendur maðurinn uppi vinalaus.

Því er Dorrit okkar eina von í dag.  Vonandi tekst henni að koma vitinu fyrir karl sinn á síðustu stundu.  Hún hlýtur að skilja og skynja að  forsetinn VERÐUR að vísa þessu ljóta klúðursmáli vinstri stjórnarinnar til þjóðarinnar. ef hann á að geta gengið nokkurnveginn standandi frá Bessastöðum við næstu forsetakosningar.

Forsetaembættið fengi þá uppreisn æru, þótt menn hafi áfram mismunandi skoðanir á persónunni Ólafi Ragnari !!


mbl.is Afhenda forseta undirskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Helgason

það er of seint að grípa um rassinn núna og fara að tala vel um óla kallin,

Hann þekkir sína vinalínu

Sigurður Helgason, 2.1.2010 kl. 11:52

2 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Nafni, ég legg mitt traust á Dorrit !!

Því miður held ég að Ólafur, einn og óstuddur, geti ekki tekið skynsamlega ákvörðun, sagan sýnir okkur það !!

Sigurður Sigurðsson, 2.1.2010 kl. 12:04

3 Smámynd: Sigurður Helgason

Óli frændi er og mun vera tækifærissinni, kemur þessu ekkert við og vonandi getur Dorrit haft einhver áhrif sem eru skinsamleg,

En það sem vantar er öflugur talsmaður meðal sjálfstæðismanna sem er ekki bullandi sekur, svo hann sé trúverðugur Bjarni er ekki sá maður.

Sigurður Helgason, 2.1.2010 kl. 12:20

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Skemmtilega orðuð fyrirsögnin hjá þér.

En við getum ekki gert ráð fyrir því, að útkoman hafi verið nein önnur en sú, sem Ólafur Ragnar komst að sjálfur.

Jón Valur Jensson, 11.1.2010 kl. 10:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband