Forsetinn á bara 1 valkost !!!
4.1.2010 | 10:21
Hann verður að hafna lögunum, hin eldri öðlast þá gildi, og í framhaldinu þegar vinstri stjórnin segir af sér myndar hann þjóðstjórn.
Þetta er eini raunhæfi kosturinn í stöðunni til að sameina þjóðina.
Annars verður allt vitlaust !!!!!!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Er þetta hótun ?
Anna Einarsdóttir, 4.1.2010 kl. 10:45
margt til í þessu Sigurður
Jón Snæbjörnsson, 4.1.2010 kl. 10:48
Sigurður, þetta er einfaldlega rangt hjá þér. Lögin frá því í sumar hafa ekkert gildi, þeim var hafnað af kröfuhöfum í Hollandi og Bretlandi. Ef forseti synjar og lögin frá 30. des. 2009 verða felld í þjóðaratkvæðagreiðslu erum við á upphafsreit. Með ótvíræða ábyrgð á Icsave skrímslinu og kröfuhafar munu ekki ljá máls á frekara samningavafstri. Þeir munu þá tvímælalaust fara dómstólaleiðina.
Þeir sem trúa á almættið ættu þá að kalla Geir Haarde aftur á skjáinn svo hann geti beðið Guð að blessa Ísland.
Sigurður Grétar Guðmundsson, 4.1.2010 kl. 11:09
Ég er sammála þér með það nafni, samningnum var hafnað, en ekki lögunum. Því geta Bretar og Hollendingar samþykkt þann samning og þá er Icesave málið í höfn.
Ég hinsvegar er á því að Ísland megi ALDREI semja frá sér þann rétt að leita með málið til dómstóla og í framhaldi þess hlíta þeim dómi.
En lögin, nafni, halda þó enn gildi sínu, þau eru í gildi á Íslandi þar til þessi ólög verða staðfest af forsetanum.
Sigurður Sigurðsson, 4.1.2010 kl. 12:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.