Þjóðstjórn strax - Davíð Oddsson forsætisráðherra

Engin spurning, nú þarf þjóðstjórn og það strax.  Ég vil strax sjá Davíð Oddsson sem forsætisráðherra og svo úrvalslið allra flokka með honum.  Með þessu má slá niður allar fyrri deilur milli DO og ISG og sameina þjóðina gegn þeim sem vilja knésetja okkur.  Í framhaldinu gera gjaldeyrisskiptasamninga við þá sem vilja styðja okkur, enda munu auðlindir okkar, núverandi og tilvonandi, bjarga okkur í gegnum þessar þrengingar.   Tilvonandi olíulindir fyrir austan eru gersemin okkar, við megum ekki glata yfirráðum yfir þeim vegna fljótfærnislegra ákvarðana.  Öll eigum við svo að hætta að tala niður krónuna, sameinast frekar um hana og hafa bjartsýni og kærleik að leiðarljósi.  Gleymum ekki börnunum okkar, þau mega ekki verða fyrir skaða í allri þessari bölsýnisumræðu.

 


mbl.is Staðan er grafalvarleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband