Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Rétta eðlið vinstri stjórnarinnar !!!

Betur og betur kemur í ljós eðli kommúnistastjórnarinnar, að leggja á nýja skatta v. versnandi tannheilsu barna, sem að mestu má rekja til hirðuleysis foreldra við tannburstun barnanna sinna. 

Þá skulu þeir sem samvizkusamlega stýra sælgætis- og gosdrykkjaneyslu barnanna fá að borga fyrir hina sem e.t.v. láta sígarettupakkann ganga fyrir í lífinu.

Skammastu þín Ögmundur !!!!


mbl.is Tillaga um sykurskatt ótrúleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðaratkvæði um Icesave samninga ??

Þar sem mönnum er nú á dögum afar tíðrætt um þjóðaratkvæði, á fólkið í landinu þá ekki skýlausan rétt til þess að segja skoðun sína á þeim samningi sem kemur út úr viðræðum við Breta og önnur lönd.

Eða eigum við bara að láta sem ekkert C og kyngja því sem þessir misvitru stjórnmálamenn segja okkur að við þurfum að greiða  ??

Ég segi NEI TAKK.  Ég er ekki tilbúinn til að borga skuldir landráðamanna og þjófa - hvort sem þeir voru íslenskir eður ei - í útlöndum.  Ég lít ekki á þessa menn íslenzka, enda gera þeir það ekki sjálfir í dag, flestir búsettir í Bretlandi, Rússlandi o.s. frv.

Ég stofnaði ekki til þessara skulda og get ekki með nokkru móti sætt mig við að múlbinda börnin mín og barnabörnin til framtíðar í einhverju skuldafeni eftir þessa landráðamenn.

 


mbl.is Ekki í þágu íslenskra hagsmuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breska Samfylkingin búin að skíta upp á bak ???

Ótrúlegt að lesa þessa frétt !!

Skv. nýjustu upplýsingum frá IMF eiga engar slíkar viðræður sér stað.   Þetta er greinilega örvinglun ónýts stjórnmálamanns sem sér sæng sína útbreidda.

Svo vill Samfylkingin ganga til samninga við slíka lygara !!

Það verður gaman að fylgjast með viðræðum Jóhönnu og Brown þegar þær fara fram - þ.e.a.s. ef Jóhanna skilur þá Brown !!!!

 


mbl.is Bretar að semja við IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband