Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010

Hrafnseyri við Dýrafjörð ??

Er það ekki stórmerkilegt að forsætisráðherra þjóðarinnar, sem fenginn er til að halda ræðu undir styttunni af sjálfum Jóni Sigurðssyni, skuli ekki vita við hvaða fjörð Hrafnseyri stendur ?

Og eftir allt klúðrið sem á undan er gengið hjá blessaðri konunni, þá er alveg sérstaklega aumkunarvert að láta taka sig svona í bólinu í fáfræðinni.

Aumingja íslenzka þjóðin segi ég nú bara, að hafa í brúnni jafn aumkunarverðan skipstjóra og Jóhanna Sigurðardóttir er !!!


Engin ágreiningsmál - hvað segir það okkur um Samfylkinguna ??

Þetta sýnir nú bara hverskonar bull er hér í gangi.  Enda er grínbragurinn farinn af þessu framboði og nú tekur alvaran við.

Skelfilegt að Besti flokkurinn skuli leiða besta svæfingalækni landsins (án svefnlyfja) til valda í borginni.  Leiðinlegri stjórnmálamaður fyrirfinnst ekki á norðuhveli jarðar.

 


mbl.is Hillir undir meirihluta í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband