Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Ólafur Ísleifsson "hæfur" ??

Mér datt í hug eftirfarandi:

Innlent - fimmtudagur - 30.10 2008 - 10:43

Upprifjun í T24: Dómnefnd hálærðra álitsgjafa sagði Icesave bestu viðskipti ársins 2007

icesave5.jpgDómnefnd þekktra íslenskra hagfræðinga, háskólakennara, starfsmanna greiningardeilda, embættismanna og hagsmunavarða valdi um síðustu áramót Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og aukið hlutafé Baugs í FL-Group sem bestu viðskipti Íslendinga árið 2007. Tilkynnt var um þetta val í áramótaútgáfu Markaðarins, viðskiptafylgirits Fréttablaðsins. Samtímis var Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi blaðsins, valinn viðskiptamaður ársins.

Vefritið T24 rifjar þetta upp og upplýsir hverjir álitsgjafarnir voru sem voru svona hrifnir af Icesave og FL-Group fyrir nokkrum mánuðum.

Dómnefndina skipuðu: Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital, Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Ágúst Einarsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, Ólafur Ísleifsson, lektor við HR, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Jafet Ólafsson hjá VBS fjárfestingabanka, Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, Ásta Dís Óladóttir, dósent á Bifröst, Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, Hafliði Helgason, fyrrverandi ritstjóri Markaðarins, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Gunnar Ólafur Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, Friðrik Már Baldursson, prófessor í HR, Hrund Rudólfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Milestone og formaður stjórnar SVÞ, Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, og Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.

Auk Icesave og hlutafjáraukningar FL-Group valdi dómnefndin sölu Novators á búlgarska símanum BTC sem ein af þremur bestu viðskiptum ársins 2007.


mbl.is Ólafur stjórnarformaður ISB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mestu "braskarar" á Íslandi !!!!!

Hvenær skyldi þessi kjáni opna augun og sjá hlutina réttu ljósi ?  Öll íslenzka þjóðin veit að hann er mesti braskari Íslandssögunnar og í dag sennilega sá skuldugasti líka !! 

Að kalla sig besta rekstrarmann Íslands er svona svipað og að segja að Steingrímur - lesist Skattgrímur J. sé klárasti stjórnmálamaður landsins !!

Þvílíkur hrokagikkur þessi drengur !!!


mbl.is Jón Ásgeir segir Walker með í tilboðinu í Haga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

20% atvinnuleysi á Spáni !!!

Hvaða heilvita þjóð vill fara í bandalag með þessari þjóð, Spánverjum, sem hingað munu streyma til að sækja fiskinn við Íslandsstrendur.

Væri ekki þessum utanríkisráðherra nær að horfa inn á við og reyna að leysa þá djúpu kreppu sem Spánn er kominn í - og mun væntanlega bara dýpka á næstunni ??? 

Hátt í 20% atvinnuleysi hlýtur að vera eitthvað sem þessi maður er stoltur af - og það fyrir ríki sem er innan ESB ??  Aldeilis glæsilegt !!

Láttu Íslendinga í friði - kæri utanríkisráðherra Spánar - við viljum hvort eð er EKKI í ESB !!!


mbl.is Gæti frestað aðildarviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsa sér - hann er varaformaður fjárlaganefndar !!!!

Við lestur greinarinnar í morgun, þá kemur manni svosem ekki á óvart að Steingrímur J. hafi gert hann að varaformanni fjárlaganefndar Íslands. 

Og hvað þá Svavar Gestsson - sem sögur herma að hafi varla geta séð um eigin fjármál á sínum tíma - að formanni samninganefndarinnar um Icesave !!!

Hvernig væri nú að alvöru rannsóknarblaðamenn samtímans kíktu á forsögu einhverra núverandi ráðherra í vinstri-kommúnistastjórninni - sögur herma að þar leynist víða maðkur í mysunni !!!

 

 

 


mbl.is Saknar vináttu sem glataðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir nema íslenzka ríkisstjórnin standa með Íslendingum !!!!!!!!

Merkilegt að sjá að allir nema íslenzka ríkisstjórnin virðist gera sér grein fyrir því að það er bæði ósanngjarnt og að öllum líkindum ólöglegt að íslenzkur almenningur greiði skuldir einkabanka í útlöndum. 

Greinilegt er að ríkissstjórn Íslands verður að segja af sér og hér verður að mynda þjóðstjórn strax !!!

Nú verða allir íslendingar að leggjast á eitt og reyna að afstýra þeim hörmungum sem Svavar Gestsson og co. - í boði ríkisstjórnar Íslands og ESB þráhyggjunnar - hefur valdið íslendingum í þessu máli.

 


mbl.is Eiga Íslendingar að greiða?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hárrétt ákvörðun !!!!!!!!!!!!!!

Forsetinn gefur þjóð sinni stórt tækifæri með þessari ákvörðun - og fær stórt tækifæri sjálfur til að sættast við hana.

 


mbl.is Staðfestir ekki Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ÓRG forseti íslenzku þjóðarinnar eða útvalins hóps ??

Í dag kemur í ljós hvort Ólafur Ragnar Grímsson lítur á sig sem forseta íslenzku þjóðarinnar eða hvort hann er hagsmunagæzluaðili tiltekins hóps í samfélaginu, sem ég vil leyfa mér að kalla útrásardólgana og aðila tengda þeim. 

Allir eru útrásardólgarnir þeirrar skoðunar að kvittað skuli undir þennan ógæfusamning sem Icesave er.  Og þetta eru sömu mennirnir sem greiddu háa styrki til rannsókna í Háskóla Íslands.  Rannsóknin beindist helzt að því að staðreyna hvað þeir væru sjálfir miklir snillingar og varð niðurstaða rannsóknarinnar í fullu samræmi við ætlaðan tilgang hennar, eins og heyra mátti á einhverjum Snjólfi prófessor á Rás 2 í morgun. 

Ég verð að viðurkenna að ég þurfti að sleppa stýrinu á leiðinni í vinnuna og bíta mig fast í handlegginn til að kanna hvort þetta væri draumur !!

En nú er semsagt komið að ögurstundu hjá ÓRG, forseta vorum.  Mun hann fara að vilja 70% þjóðarinnar og hafna Icesave lögunum og þar með halda hagsmunum íslenzku þjóðarinnar á lofti um sinn, eða mun hann fara að vilja örfárra einstaklinga, sem með skipulögðum áróðri hafa náð slíku tangarhaldi á Samfylkingunni að öll gagnrýnin hugsun er þar á bak og burt.  Svo ekki sé nú talað um þann snúning í 180 gráður sem Steingrímur - oft nefndur Skattgrímur - hefur tekið í málinu. 

Enginn íslendingur mun skilja það til fulls hvað gerðist í heilabúi þess manns, en það hlýtur nú að verða verðugt rannsóknarefni fyrir læknadeild HÍ í framtíðinni !!


Forsetinn á bara 1 valkost !!!

Hann verður að hafna lögunum, hin eldri öðlast þá gildi, og í framhaldinu þegar vinstri stjórnin segir af sér myndar hann þjóðstjórn.

Þetta er eini raunhæfi kosturinn í stöðunni til að sameina þjóðina. 

Annars verður allt vitlaust !!!!!!


Forsetinn kominn út í horn !!

Forsetinn er í vanda,  hann getur ekki skrifað undir þessi ólög,  með skírskotun til fyrirvaranna sem hann gerði í sumar og eru nú að engu orðnir.  Að auki hafa helmingi fleiri skorað á hann núna en 2004 og því hlýtur "gjáin milli þings og þjóðar" að vera mun dýpri núna - er þetta ekki orðið að gljúfri ??

En á móti kemur að við það að neita undirskriftinni þá sprengir hann í loft upp fyrstu kommúnistavinstristjórnina sem hann hefur dreymt um alla ævi. 

Því hlýtur hann að vera í tómum vandræðum núna. 

En vonandi tekst Dorrit að koma vitinu fyrir Ólaf og koma honum í skilning um að Forseti Íslands er forseti íslenzku þjóðarinnar, ekki forseti Samfylkingarinnar og VG !!!


mbl.is 4 stjórnarþingmenn skrifuðu undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Legg allt mitt traust á Dorrit !!!

Því miður, eftir það sem á undan er gengið, er vilji Ólafs Ragnars væntanlega sá að undirrita þessi lög.  Það mun hann gera vegna pólitísks vinskapar við núverandi stjórnvöld.  Annars stendur maðurinn uppi vinalaus.

Því er Dorrit okkar eina von í dag.  Vonandi tekst henni að koma vitinu fyrir karl sinn á síðustu stundu.  Hún hlýtur að skilja og skynja að  forsetinn VERÐUR að vísa þessu ljóta klúðursmáli vinstri stjórnarinnar til þjóðarinnar. ef hann á að geta gengið nokkurnveginn standandi frá Bessastöðum við næstu forsetakosningar.

Forsetaembættið fengi þá uppreisn æru, þótt menn hafi áfram mismunandi skoðanir á persónunni Ólafi Ragnari !!


mbl.is Afhenda forseta undirskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband