VG liðar búnir að selja sálina !!!
9.7.2009 | 12:27
Í raun er það skammarlegt hvernig þingmenn VG, einn af öðrum, fara nú á bak orða sinna fyrir kosningar um andstöðu við inngöngu Íslendinga í ESB. Hvert á fætur öðru láta þau teyma sig á asnaeyrunum fram og til baka. Sennilega mun skáksnillingurinn segja "skák og mát" og samþykkja afsal fullveldisins með samþykkt Icesave á endanum.
Er ekki kominn tími til að koma þessari skaðræðis kommúnista-vinstri-klúðursstjórn frá völdum ??
![]() |
Almennur fyrirvari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lygaþvæla Össurar - enn og aftur
8.7.2009 | 10:28
Það þarf ekki einu sinni 5 ára krakka til að skilja það að hér fer Össur Skarphéðinsson enn einu sinni með ósannindi.
Í annarri frétt segir Steingrímur að sendinefndin hafi haldið fram þessu áliti lögfræðistofunnar alla samningagerðina !!
En nú segist Össur - UTANRÍKISRÁÐHERRA ÍSLANDS - ekki hafa séð hana, en viti að hún sé til.
Ráðherra sem er uppvís að því að ljúga að þjóðinni á að segja af sér - STRAX.
![]() |
„Mér er sagt það sé til“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Illa upplýstur eða illbeittur vilji ?????????
7.7.2009 | 12:57
Maður veltir nú fyrir sér hvort Össur sé svona illa upplýstur ?
Eða er ásetningurinn um ESB aðildina öllu yfirsterkari hjá manninum og hann tilbúinn til að skuldsetja samlanda sína án þess að láta á málið reyna ??
Dæmi nú hver heilvita Íslendingur fyrir sig !!!!
![]() |
Lögfræðiálitið breytir engu" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hverujm er nú betur treystandi - Steingrími eða Davíð ??
5.7.2009 | 12:47
Hver sagði að farsæl lausn væri að finnast á Icesave málinu ?? Varð svo að kyngja bitanum og hefur komist upp með að þagga þetta bull í sér í hel.
Var það ekki afturhaldssinninn Steingrímur J. sem nú ætlar að leggjast undir Samfylkinguna og láta hana teyma sig á ASNAEYRUNUM inn í ESB ??
Þetta fær fólkið í landinu að launum fyrir að kjósa þennan vitleysing.
![]() |
Ósvífin og ódýr afgreiðsla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eftir lestur viðtals Agnesar við Davíð er ég enn sannfærðari en áður um að þeir lögfræðingar sem haldið hafa því fram að okkur beri ekki að greiða Icesave hafi rétt fyrir sér. Var það svosem alveg fyrir, en þetta styrkir mig enn frekar í trúnni. Enda koma hér fram málefnanleg rök fyrir því að við eigum að láta reyna á dómstólaleiðina !!!
Merkilegt að heyra að til séu gögn sem sanni að svo sé, en einhverra hluta vegna er þeim haldið leyndum af kommúnistastjórninni ????
Og enn frekar sannfærist ég eftir að hafa lesið HROKAFULLT svar Steinríks (gríms) fjármálaráðherra við greininni á visir.is. Það er alltaf að koma betur í ljós að ríkissirkusnum er ekki stjórnað af trúðnum, heldur beint úr APABÚRINU.
![]() |
Ekki setja þjóðina á hausinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég treysti á að Sjálfstæðisflokkurinn felli þennan samning !!!
15.6.2009 | 18:06
Fljótlega mun reyna á styrk þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Munu þeir standa með íslenzkum almenningi eða greiða atkvæði gegn honum og binda þjóðina í slíka skuldafjötra að enginn vill hér lengur búa ??
Við sem sýndum Sjálfstæðisflokknum þó þá hollustu í síðustu kosningum að kjósa hann aftur krefjumst þess að þingmenn flokksins samþykki EKKI þennan Icesave samning sem villuráfandi vinstristjórn hefur gert við Bretana.
Við megum ekki láta kúga okkur til ábyrgðar skulda sem við berum ekki ábyrgð á.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks: Hér með skora ég á ykkur að segja NEI við þessum samningi og láta reyna á styrk og þor íslenzku þjóðarinnar. Við höfum staðið slíkt af okkur áður og gerum það núna.
Allt annað eru LANDRÁÐ
![]() |
Rætt um Icesave á Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Greinilega RISAGJÁ milli þings og þjóðar !!!!!!!!!!!
9.6.2009 | 14:01
Það er með ólíkindum að hlusta á þessa tvo forsvarsmenn stjórnarinnar halda því fram að þetta mál sé ekki þannig vaxið að það eigi að fara í þjóðaratkvæði.
Nú verður gaman að sjá viðbrögð Bessastaða - Bola !!! Er hann sömu skoðunar ?? Mun hann neita að skrifa undir þessi lög og vísa þessu þar með í þjóðaratkvæði.
Þetta fólk er svo gersamlega viðsnúið og undarlegt að engu tali tekur. Mér sýnist Steingrímur bara búinn á því og hann hefur greinilega kastað hvíta flagginu inn á vígvöllinn = UPPGJÖF.
Þessu fólki verður að koma frá völdum - þau eru ekki starfi sínu vaxin, hafa ekki þekkingu sem til þarf eða metnað fyrir hönd íslenzku þjóðarinnar.
Allir á Austurvöll í dag !!!
![]() |
Valtur meirihluti í Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lygarinn Össur Skarphéðinsson á að segja af sér !!!!
9.6.2009 | 08:54
Ef þetta reynist rétt hjá Árna, þá er Össur Skarphéðinsson einfaldlega lygari og ekkert annað.
Ráðherra sem er uppvís að því að ljúga að þjóðinni á að SEGJA AF SÉR - STRAX.
Það hlýtur að vera krafa þjóðarinnar í dag að Össur Skarphéðinsson segi af sér.
![]() |
Var undir forystu utanríkisráðuneytisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er þetta lið með öllum mjalla ??
3.6.2009 | 16:09
Þetta er nú einhver ótrúlegasta frétt sem ég hef lesið. Skuldavandinn minni en áætlað var. Ég myndi skilja þetta ef það væri 1. apríl
Mér skilst að þeir sem hafa fengið frystingu lána séu ekki taldir í þessum hópi. Hversu margir skyldu þeir nú vera ??
Þessari kommúnistaríkisstjórn verður að koma frá sem fyrst. Við verðum að fá ALVÖRU-stjórnmálamenn sem geta tekið af skarið og blásið von og lífi í íslenzku þjóðina !!
![]() |
Skuldavandinn minni en talið var |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rétta eðlið vinstri stjórnarinnar !!!
14.5.2009 | 21:30
Betur og betur kemur í ljós eðli kommúnistastjórnarinnar, að leggja á nýja skatta v. versnandi tannheilsu barna, sem að mestu má rekja til hirðuleysis foreldra við tannburstun barnanna sinna.
Þá skulu þeir sem samvizkusamlega stýra sælgætis- og gosdrykkjaneyslu barnanna fá að borga fyrir hina sem e.t.v. láta sígarettupakkann ganga fyrir í lífinu.
Skammastu þín Ögmundur !!!!
![]() |
Tillaga um sykurskatt ótrúleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |