Kolbrún Bergþórsdóttir gæti verið móðir hans !!

Kolbrún Bergþórsdóttir ritar grein í Morgunblaðið í dag.  Hún byrjar á því að lýsa þeirri skoðun sinni að formaður Sjálfstæðisflokksins hafi ekki áunnið sér nægilegt traust til að verða einn af forystumönnum þjóðarinnar og þegar lengra er lesið virðist hún álíta Bjarna strengjabrúðu "gömlu brýnanna" í Sjálfstæðisflokknum.  Væntanlega eru þeir Davíð Oddsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stórvinur Kolbrúnar, í þeim félagsskap.  Þessi gömlu brýni eru greinilega stórhættuleg að mati Kolbrúnar og munu teyma þjóðina langt aftur í tímann, "til náttúrunnar að tína fjallagrös".

Hún telur einnig að Bjarni sé að gera "gömlu mönnunum til geðs" að láta ekki skoðanir sínar í ljós, og telur þar með augljóst að Bjarni sé stuðningsmaður aðildar Íslands að ESB.  Hann stjórnist greinilega ekki af eigin sannfæringu heldur af vilja gömlu mannanna.

Kolbrún er greinilega ekki veruleikatengd.  Hún áttar sig ekki á því að á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í júní s.l. kom fram tillaga að landsfundarályktun um afstöðu Sjálfstæðisflokksins til aðlögunarviðræðnanna.  Sú tillaga var borin fram af Hallgrími Viðari Arnarsyni, sem er aldeilis ekkert gamalmenni.  Hann er það ungur að Kolbrún gæti verið móðir hans.  Ég var á þessum fundi og er ekki það skyni skroppinn að ég tók eftir því að einungis örfáir - já örfáir - landsfundarfulltrúar réttu ekki upp hönd þegar tillaga Hallgríms og fleiri var borin upp.  Og langflestir þeirra sem eru yngri en Kolbrún sjálf samþykktu tillöguna með miklu lófataki.

Kolbrún gleymir líka að minnast á afstöðu íslenzku þjóðarinnar í þessu máli.  Yfir 70% þjóðarinnar eru á móti inngöngu Íslands í ESB, skv. skoðanakönnunum.  Hvorki meira né minna.

Að endingu gerir hún svo lítið úr "gömlu sjálfstæðisstefnunni" semsagt "sjálfstæði þjóðarinnar", sem hún barðist svo ötullega fyrir lengi vel. 

Formaður Sjálfstæðisflokksins verður að fylgja stefnu flokksins.  Ef Bjarna Benediktssyni tekst ekki að sanna sig sem einn af forystumönnum þjóðarinnar þá er það vegna þess að honum hefur ekki tekist að fylgja eftir þeirri landsfundarályktun sem Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti í sumar.Ef Bjarni Benediktsson þarf að "fara að heiman" til að geta fylgt eftir þeirri sannfæringu sinni að Ísland eigi heima í ESB, þá verður hann einfaldlega ekki lengi formaður Sjálfstæðisflokksins.  Hann verður  að standa í lappirnar, bíta frá sér og sýna að hann sé tilbúinn til að fylgja eftir stefnu Sjálfstæðisflokksins, stefnunni sem mörkuð er á landsfundi.  Einungis þannig mun hann öðlast frekara traust sjálfstæðismanna og þjóðarinnar og átt mikla möguleika sem framtíðarleiðtogi þjóðarinnar. 

Stundum er nefnilega betra heima setið en af stað farið.  Alveg sérstaklega þegar valið stendur um inngöngu í ESB.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Að Kolbrún skuli voga sér svona skriftir í sjálft Morgunblaðið. Verður hún ekki örugglega rekin?

Björn Birgisson, 6.1.2011 kl. 11:16

2 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Þá væntanlega fyrir að þykjast vera vandaður blaðamaður en fara með annað eins bull - hver veit ??

Sigurður Sigurðsson, 6.1.2011 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband