VÍST orskaðirðu hrunið
15.12.2008 | 18:05
Ó jú, Ingibjörg, þú gerðir það með undirlægjuhætti við útrásarfuglana, gagnrýnislaust, og með dyggri aðstoð Bessastaðabóndans. Ekki reyna að þvo hendur þínar af þessu klúðri, það var margbúið að tyggja það í þig að bankakerfið væri að hruni komið, en þú hlustaðir ekki. Meðvitunarleysi þitt birtist núna landsmönnum í skuldaklafa til margra ára. Valdagræðgin sem hefur alltaf einkennt ykkur í Samfylkingunni á stóran þátt í því hvernig komið er fyrir íslenzkri þjóð. Og fyrir alla muni, ekki klúðra meiru með því að troða okkur inn í ESB - sovétveldið nýja. Þjóðin á eftir að rísa upp til varnar og segja NEI TAKK.
Ingibjörg: Orsökin liggur í ofsafrjálshyggjunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Er nú Solla og Samfylkingin að þvo hendur sínar. En aumkunarvert! Gat nú skeð að Samfylkingarliðið stæði nú í biðröð við handvaskinn og þvæði hendur sínar af óhroðanum.
Höskuldur P. Magg. (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 18:10
Grátbrosleg tilraun til hvítþvottar hjá Sollu og Samfylkingunni.
ThoR-E, 15.12.2008 kl. 18:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.