Þorgerður á að segja af sér
17.12.2008 | 13:30
Þorgerður Katrín á að segja af sér. Hún er með ummælum sínum búin að setja einhverja línu sem meirihluti sjálfstæðismanna er alfarið á móti. Hún nýtur ekki míns trausts lengur.
Formaður Sjálfstæðisflokks eyði misskilningi um landsfund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Er ekki lengur skoðanafrelsi í Sjálfstæðisflokknum? Það skiptir litlu hvort þú treystir henni eða ekki ef meirihluti flokksmanna gerir það. Og hvenær fór fram mæling á því hvort meirihluti sjálfstæðismanna sé alfarið á móti aðildarviðræðum eða ekki? Ég held því fram að þetta sé rangt. En sjáum til eftir landsfund...
sleggjudómarinn (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 14:02
Ég er alveg hjartanlega sammála þér. Svo finnst mér að hún ætti að segja af sér af öðrum ástæðum líka, hún átti 500 mill. krónur í bréfum kaupþings og tel ég það vera ástæðuna fyrir að seðlabankinn lánaði bankanum 500 mill evra fyrir veð í dönskum fjárfestingabanka og hafa bréfin nú helmingast. Ótrúlegt að hún fái að vera áfram í stjórn.
Gagnrýnirinn, 17.12.2008 kl. 14:09
Sæll sleggjudómari, þetta er að sjálfsögðu mín skoðun, við sjáum svo til. Ég tel mig þekkja mjög marga sjálfstæðismenn, finn varla neinn sem er á þessari skoðun.
Sigurður Sigurðsson, 17.12.2008 kl. 14:10
Það væri gaman að heyra um einhvern sem á ekki að segja af sér í þessu landi....
Jón Ingi Cæsarsson, 17.12.2008 kl. 14:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.