VG sprungnir í loft upp !!!
14.7.2009 | 11:13
Hverskonar Íslendingur er þessi Árni Þór ??
Maður á bara ekki orð yfir þessa yfirlýsingu mannsins, sem fólk úr röðum VG valdi til þingstarfa fyrir flokkinn. Ég get ekki betur séð en að maðurinn hafi dottið illilega á höfuðið, sennilega á sama stað og Steingrímur J.
Greinilegt að valdasýkin hefur villt þessum mönnum sýn, þeir eru búnir að kúvenda í afstöðu sinni til Icesave og ESB.
VG verður minnsti stjórnmálaflokkur landsins eftir næstu kosningar, sem óðum styttist í að verði !!
Ekki formleg umsögn Seðlabanka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það er greinilegt að stjórnmálamenn í VG eiga erfitt. Baklandið hefur ekki taugar í að tekist sé á við erfið mál. Það gerir þeirra starfsumhverfi erfitt og hæfni VG sem flokks í björgunarleiðangri hrunsins minni.
Það er erfitt að vera settur í skítverk sem enginn vildi þurfa að glíma við og sitja svo undir skítkasti eigin flokkamanna sem eru farnir á taugum.
Jón Ingi Cæsarsson, 14.7.2009 kl. 11:36
Tilhvers að setja málið í utanríkisnefnd í fyrstalagi? Maður sér það alveg á orðum Árna að hann er löngu búinn að gera upp hug sinn, þetta er skrípaleikur.
Júlíus (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 11:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.