Stöðutaka gegn íslenzku þjóðinni !!!!
26.8.2009 | 11:39
Ótrúlegt að lesa þessa þvælu í einum af höfundum útrásarsukksins - tala nú ekki um þegar hann reynir að verja Sigurð Einarsson og Hreiðar Má.
Og hann minnist ekki einu orði á gamblið í Exista og stöðutökuna gegn íslenzku krónunni - sem er í raun stöðutaka gegn ÍSLENZKU ÞJÓÐINNI.
Vonandi er tími þessara flottræfla liðinn - þeir geta drullast til að búa í útlöndum eftir sukkið mín vegna - eru væntanlega búnir að stela nógu miklu undan og skella því á leynireikninga úti í heimi.
Vonandi ná þér sér ekki aftur á strik í íslenzku samfélagi, sem á að vera byggt upp af heiðarleika og sanngirni en ekki svikum og prettum gegn náunganum.
![]() |
Fengum langmesta höggið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.