ESB kjaftæði - frá hagsmunasamtökum hverra ??????
3.12.2008 | 08:41
Alveg með ólíkindum að lélegustu hagsmunasamtök landsins, neytendasamtökin, skuli koma fram með þessa kröfu, byggða á engu öðru en dylgjum og spámennsku. Hér kemur engin röksemdafærsla fram, bara einhverju kastað út í loftið til að láta taka eftir sér. Hafa þessi samtök svo mikið sem rætt við VENJULEGA neytendur í ESB löndunum í kringum okkur og kannað þeirra afstöðu, hvernig því líður. Nei, ekki frekar en þau hafa barist fyrir neytendur á Íslandi í gegnum tíðina. Alveg með ólíkindum hversu handónýt þessi samtök eru í baráttumálum neytenda. Hafa þau, svo dæmi sé tekið, kafað djúpt í það hvernig innflytjendur vöru á síðastliðnum árum (þegar krónan var sterk og var besti gjaldmiðill í heimi) misnotuðu stórlega aðstöðu sína, reiknuðu vöru sína sjaldan á réttu tollagengi og græddu því ótæpilega á allri velmeguninni sem hér ríkti. Nei, maður hefur aldrei séð þessi draslsamtök beita sér á þessu sviði. Gott dæmi er þessi svívirðilega einokun á matvörumarkaði, svo ekki sé minnst á fjölmiðlamarkaðinn.
![]() |
Sótt verði um aðild að ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það er ekki neytendum í hag að hér falli gjaldmiðillinn um 60 til 110% gagnvart öðrum gjaldmiðlum á met tíma sem fer svo beint eða óbeint út í húsnæðislán landans. Eins var ekki eðlilegt að hafa gjaldmiðilinn svona gríðasterkan í lengri tíma. Þetta allt smitast beint út í verðlagið í formi verðbólgu sem hjálpar neytendum síst.
"Gott dæmi er þessi svívirðilega einokun á matvörumarkaði, svo ekki sé minnst á fjölmiðlamarkaðinn."
Gott dæmi um afleiðingu einangrunarstefnunnar sem hér herfur ríkt undanfarin ár sem fælt hefur frá erlenda fjárfesta og haldið verðlaginu uppi.
Finnst þú tala í hringi í þessum málum og augljóslega ekki nógu upplýstur um hvað stendur á bakvið þessa yfirlýsingu Neytendasamtakana.
Allt hið besta mál. Út með spillinguna og einokunina. Inn í Evrópusambandið, inn með erlent fjármagn og komum á fót alvöru opnum markaði hér ekki "gerfisamkeppni" líkt og ríkt hefur hér á milli m.a. banka, tryggingafélga, olíufélga og smávöruverslana.
Flott hjá Neytendasamtökunum sem augljóslega starfa með okkar hag að leiðarljósi!!
Kv. Svíi
Svíi (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 09:34
Ég er þér sammála SISI þetta eru lúðar...
Ixus (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 10:56
Sæll Svíi, það er engum í hag að hér falli gengið, hins vegar verða líka þeir sem taka húsnæðislán í erlendri mynd, þegar margoft hefur verið varað við sterkri krónu, að bera þá áhættu sjálfir. Annars er ég á því að glannaskapur bankanna sé aðalorsökin fyrir þessum gengis-húsnæðislánum. Ég er ekki á því að einhverri einangrunarstefnu sé um að kenna, þetta er einfaldlega einokun örfárra einstaklinga, sem í skjóli peningavalds hafa komist upp með það að þvinga aðra útaf markaði. ´
Ég tel mig vera þokkalega upplýstan í Evrópumálum, eftir fjölda samtala minna við "hinn venjulega neytanda" í Evrópu, mitt sjónarmið er einfaldlega það að við skulum skoða þessa hluti mjög vandlega áður en við tökum skyndiákvörðun í jafn stóru máli. Það er ekki víst að eins auðvelt verði að bakka útúr dæminu þegar inn er komið.
Hinsvegar stend ég við þá fullyrðingu að Neytendasamtökin eru handónýt, hafa margsýnt það og alls ekki verið nægilega á verði með hag íslenzkra neytenda að leiðarljósi. Dæmin eru matvöruverðið, bensínokrið og margt fleira.
Sigurður Sigurðsson, 3.12.2008 kl. 13:21
Haha, ég tók einmitt eftir þessum parti svo greinilega.
...og eiginlega í öllum umræðum um ESB; ,,Hér kemur engin röksemdafærsla fram, bara einhverju kastað út í loftið til að láta taka eftir sér."
EMM (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 13:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.