Þjóðaratkvæði um Icesave samninga ??
9.5.2009 | 14:33
Þar sem mönnum er nú á dögum afar tíðrætt um þjóðaratkvæði, á fólkið í landinu þá ekki skýlausan rétt til þess að segja skoðun sína á þeim samningi sem kemur út úr viðræðum við Breta og önnur lönd.
Eða eigum við bara að láta sem ekkert C og kyngja því sem þessir misvitru stjórnmálamenn segja okkur að við þurfum að greiða ??
Ég segi NEI TAKK. Ég er ekki tilbúinn til að borga skuldir landráðamanna og þjófa - hvort sem þeir voru íslenskir eður ei - í útlöndum. Ég lít ekki á þessa menn íslenzka, enda gera þeir það ekki sjálfir í dag, flestir búsettir í Bretlandi, Rússlandi o.s. frv.
Ég stofnaði ekki til þessara skulda og get ekki með nokkru móti sætt mig við að múlbinda börnin mín og barnabörnin til framtíðar í einhverju skuldafeni eftir þessa landráðamenn.
Ekki í þágu íslenskra hagsmuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.