Góð grein frá réttsýnum lögmanni !!!
24.11.2009 | 10:33
Ekki kemur mér á óvart að Karl Axelsson skuli sjá sig knúinn til að skrifa greinina sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Eftir lestur hennar sannfærist ég líka betur og betur um það hvílíkt endemis rugl er í gangi í þessu hreinsunarstarfi eftir bankahrunið.
Fréttir berast af því að stærstu löxum íslenzka hrunsins sé boðið að halda áfram bullinu eins og ekkert hafi í skorist gegn aukningu hlutafés, hvaðan sem það nú kemur. Og til að friða óþolinmóða þjóð, sem kallar á réttlæti gagnvart stærstu leikendum í hruninu, þá er settur á svið einhverskonar sýndargjörningur í formi kyrrsetningar eigna, svona til að sýna að menn séu þó að gera EITTHVAÐ !!!
Karl Axelsson er einn virtasti lögmaður landsins. Með grein sinni í Mogganum í dag, þar sem hann rassskellir bæði embætti saksóknara og Fjármálaeftirlitið, sannfærir hann mig enn betur um það hvert stefnir í íslenzku samfélagi.
Heiðarleiki, réttlæti og sannleikur eru hlutir sem okkur voru kenndir í æsku. Greinilegt er að núverandi stjórnvöld ætla sér að hafa þessa hluti að engu við sína bágbornu tilraun til að endurreisa samfélagið okkar.
Enda er þeim greinilega að mistakast það hrapallega.
![]() |
Lögmanni Baldurs algjörlega ofboðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:00 | Facebook
Athugasemdir
O jæja. Ég efast ekkert um að Karl meinar það sem hann segir en það má ekki gleyma því að maðurinn er í vinnunni... við værum varla að sjá þessi viðbrögð frá honum annars.
Páll Jónsson, 24.11.2009 kl. 12:00
Karl Axelsson er ekki lögmaður með endalausa sýniþörf í fjölmiðlum, eins og sumir ónefndir lögmenn eru um þessar mundir.
Ég þykist vita að hann kemur ekki fram í fjölmiðlum af þessu tilefni nema því aðeins að honum finnist mælirinn fullur !!
Sigurður Sigurðsson, 24.11.2009 kl. 13:44
Það er alveg ljóst að Baldur bjó yfir meiri upplýsingum en markaðurinn. Móðir mín t.d.
hafði ekki hugmynd um að verið væri að ræða á leynifundi í London að sennilega færi
bankinn á hliðina og að Íslenski tryggingasjóðurinn gæti ekki tryggt innistæðueigendur í hinum íslenska Landsbanka í London ( Icesave ).Það var efni fundarins. Baugur og Jón Ásgeir áttu heilan borgarstjórnarflokk og nærri heilan þingflokk en Jón bar fé á alla sem vildu láta kaupa sig: Guðlaug, Steinunni V etc. Ef þeir gerðu það ekki þá réðu þeir börnin og tengdabörnin í vinnu.
Einar Guðjónsson, 24.11.2009 kl. 14:33
Ok gott og vel, það þarf að rannsaka hann. Við deilum ekki um það. En hvers vegna þarf að bera sakirnar á borð fyrir alla sem vilja hlusta og er það hreinlega löglegt?
Blahh (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 19:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.