Eru fávitar uppi í stýrishúsi ??
3.12.2009 | 21:15
Hvað er eiginlega að þessu hyski sem á að heita stjórnendur þjóðarinnar ??
Þjóðin hefur greinilega kosið yfir sig tóma rugludalla sem EKKERT kunna til verka. Það sést best á kúvendingu Skattgríms og félaga í Icesave og ESB málum.
Þessu liði þarf að fleygja sem ALLRA FYRST út úr stjórnarráðinu og fá þangað fólk sem KANN EITTHVAÐ !!!!!
Ísland stefnir í greiðsluþrot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Og hverjir ættu það svosem að vera? Sjálfstæðisflokkur sem ber mesta ábyrgð á því að skapa ástandið til að byrja með?
Púkinn, 3.12.2009 kl. 21:32
Já, Sjálfstæðisflokkurinn væri síst verri kostur en það sem við búum við í dag. Undirlægjuháttur stjórnarflokkanna er verri en það sem við höfðum áður. Stjórnarflokkarnir virðast ekki halda uppi vörnum fyrir þjóðina gagnvart erlendum kröfuhöfum og ef þeir hafa reynt það í hljóði hefur það greinilega ekki gengið vel hjá þeim.
Bullið um það að samþykkt Icesave muni bjarga lánshæfismati ríkissjóðs er síðan enn ein vitleysan. Hvenær hefur aukin skuldsetning (hvað þá í formi óútfyllts víxils) bætt lánshæfismat nokkurs?
Stefán Árni Stefánsson (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 21:48
Villtu semsagt fá Davíð og Dóra aftur...sama frjálshyggjubullið og kannski annað samþykki fyrir innrás í Írak...?
Ykkur sjálfstæðismönnum er ekki viðbjargandi.
Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 22:26
Þessum Helga Jónssyni er ekki viðbjargandi. Er einhver til í að segja honum að Davíð og Dóri séu uppteknir við annað þessa dagana.
Ljómi (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 23:46
Ég hripaði þetta á eitthvurt bloggið um daginn.
Það er ensi stutt eftir af fullveldinu ef Nornin fær að stýra lengur.
Þjóðarskútan sem var á fullu stými upp "shopping" - Spree hefur steytt á skeri og freon af kælikerfinu lekið um allt og fryst það sem fyrir varð.
Nornin stendur í brúnni og gargar í sambandslausa talstöðina "stöðuleika náð" sem er rétt að því leyti að ekki sekkur strandað skip.
Nágrímur hefur lokast inní í frystihólfinu og reynuir að morsa með fingrunum á þilið. "allt er OK fyrst Daó er kominn af".
Nornin skilur bara ekki mors, né nokkuð annað sem ekki var tekið fyrir á landsprófi 1966.
Bankarnir í lestinni hafa gert gat á dallinn og lekur þaðan út allt sem í þeim var.
Nornin reynir af veikum mætti að dæla þjóðinni milli lenstankanna og rétta dallinn af þar sem hann situr fastur í anddyrinu á ESB.
Ekki er þó von að dallurinn hafi strandað. Þegar að skipt var um skipstjóra síðast tók sá með sér sjókortin en núverandi en "kapitan" hefur stýrt dallinum á korti rissuðu á saurblað kommúnistaávarpsins.
Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 4.12.2009 kl. 09:35
Geri þín orð að mínum Sigurður.
ÞJ (IP-tala skráð) 4.12.2009 kl. 21:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.