Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Stjórnin verður að segja af sér !!!

Engin spurning að þessi vinstristjórn verður að fara frá völdum.  Ekki seinna en strax.  Þjóðin er búin að fá nóg af þessu baktjaldamakki og sukki vinstri manna - þeir hafa heldur betur sýnt sitt rétta andlit og Steingrímur J. hefur algerlega brugðist þjóðinni.  Hvað þá Svavar Gestsson !!

Vonandi fer þetta lið frá sem fyrst og ný þjóðstjórn verður mynduð sem tekur á vandamálunum af festu og með hagsmuni heimilanna og allrar þjóðarinnar að leiðarljósi !!


mbl.is Þingfundi nú frestað til 15
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarandstaðan stendur vörð um þjóðina !!!

Vonandi tekst stjórnarandstöðunni að sýna fram á lygina í Svavari, Össuri og nú síðast Steingrími J.  Mennirnir eru greinilega uppvísir að því að segja ósatt - vilja ekki að samskipti nefndarinnar og lögfræðistofunnar komi fyrir Alþingi. 

Einfaldlega vegna þess að þá kemst upp um svikamyllu vinstri stjórnarinnar.

Og vonandi sjá Einar og Þráinn að sér og standa með þjóðinni !!


mbl.is Vilja sjá tölvupóstana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður á bara ekki orð !!!

Hverskonar svik eru í gangi gagnvart Alþingi ? 

Af hverju neitar Svavar Gestsson að koma fyrir nefndina ?

Af hverju fær ekki minnihlutinn afhent afrit af tölvusamskiptunum við lögmannsstofuna ??

Ætlar virkilega þessi kommúnistaríkisstjórn að hunsa vilja nánast allra landsmanna og keyra þetta ruglmál í gegnum þingið og afsala íslendinga öllum rétti skv. alþjóðalögum ?

Vonandi lætur þjóðin sig ekki vanta niður á Austurvöll á nýju ári til að mótmæla þessum stjórnarháttum ! 

A.m.k. verður það mitt eina áramótaheit að mæta - alltaf !!!


mbl.is Svavar neitaði að mæta á fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál !!!

Vonandi lætur hún ekki Ice-grím beygja sig í mesta hagsmunamáli þjóðarinnar, fyrr og síðar.

 


mbl.is Guðfríður Lilja sest á þing að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seltjarnarnes stendur sig bezt !!!

Mitt gamla sveitarfélag stendur sig greinilega bezt, svo til skuldlaust bæjarfélag, enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn haldið þar um stjórnartaumana alla tíð.

Vonandi komast vinstri-kommúnistar aldrei til valda á Seltjarnarnesi !!!!


mbl.is Líkt og reykurinn leitar útsvarið upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð hafði alltaf rétt fyrir sér !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Málið er að Davíð Oddsson hafði alltaf rétt fyrir sér í bankahruninu, ítrekað varaði hann við því sem var að gerast hjá bönkunum en því miður var framboð af eyrum og heilum sem vildu hlusta og skilja af mjög skornum skammti.

Þetta er að koma betur og betur í ljós því lengra sem frá líður og þess vegna er furðulegt að þurfa að hlusta enn einu sinni á bullið í Ingibjörgu Sólrúnu - fyrrum vonarstjörnu jafnaðarmanna á Íslandi, sem hrökklaðist frá völdum eftir bankahrunið, rúin öllu trausti, væla enn og aftur um Davíð Oddsson, slíka yfirburði sem maðurinn hefur gagnvart henni í stjórnmálasögu Íslendinga !!!

Ekki mun sagan dæma stjórnmálaferil hennar merkilegan, fyrst sem borgarstjórans sem tók við skuldlausu búi en gekk þannig frá fjármálum Reykjavíkurborgar að þær eru nú rústir einar,  síðan sem annars hrunaráðherrans í ríkisstjórn D og S lista þar sem annað aðalhlutverkið í því dramatíska leikriti var hennar.

Og svona til að minna lesendur á, þá var gengi ISK gagnvart Evrunni í kringum 145 þegar Davíð fór úr Seðlabankanum, og hafði verið að styrkjast til muna frá hruninu, en hvernig er staðan núna þegar vinstrikommúnistastjórn KIM IL J. Sigfússonar og co. heldur um stýrið ??

Vonandi á Davíð Oddsson eftir að snúa aftur í stjórnmálin, til þess hefur hann traust stórs hóps kjósenda og alveg örugglega mun meira vit og þor heldur en þeir kjánar sem nú hafa valist til forystu í stjórnarráðinu    !!!


mbl.is Var lofað að Davíð myndi hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski ekki, en Steingrímur hverfur fljótlega........

..úr stól fjármálaráðherra og plantar sér út í sal sem andstöðuþingmaður.  Þar á hann heima og hvergi annarsstaðar.

Hann hefur svo sannarlega sýnt að hann er gersamlega vonlaus ráðherra, sem gengur á bak allra orða sinna  !!!


mbl.is Icesave mun ekki hverfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BRUÐLABORGIN !!

Segi ekki meir !!
mbl.is Tónlistarhúsinu gefið nafn í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattbyrði allra íslendinga hækkar - líka þeirra lægstlaunuðu !!!

Vil hvetja alla til að opna eftirfarandi slóð og skoða hvert um sig hvernig skattbyrði okkar mun aukast á næsta ári, verði skattafrumvarp ríkisstjórnarinnar að lögum.

Veit ekki hvort ég á að segja "gangi ykkur vel" eða "samhryggist okkur öllum"

http://www.xd.is/skattar

 


RÚMLEGA 30.000 UNDIRSKRIFTIR

Skyldi það vera nóg til að vekja upp útrásardrauginn á Bessastöðum ???

Vonandi fara undirskriftirnar í 50 þúsund áður en yfir lýkur.

 


mbl.is Tæplega 30 þúsund áskoranir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband