Jón Magnússon ótrúverðugur

Þetta kemur nú úr hörðustu átt frá Jóni Magnússyni,  hann hefur hamast á Seðlabankanum, en ekki sagt orð um þá sem mestu ábyrgðina bera á eftirlitinu, þ.e. Fjármálaeftirlitið.  Skyldi það vera tilviljun ???  Sonur hans er forstjóri fjármálaeftirlitsins.  Þetta heitir á góðu máli:  SPILLING.  Farðu burt strax af Alþingi, Jón Magnússon, og láttu ekki sjá þig í íslenskri pólitík framvegis.
mbl.is Afstaða Kristins tekin fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má ALLS EKKI gerast, Geir Haarde

Í fyrsta lagi er það algert grundvallaratriði að opinber rannsókn með aðkomu erlendra aðila fari fram sem allra fyrst.  Sömu menn og ollu bankahruninu mega ekki eignast þessa hluti fyrr en slíkt uppgjör hefur farið fram og hverjum steini flett við.  Í annan stað finnst mér það alveg fráleitt aö sama framsóknarklíkan,  sem rústaði fyrri banka, setjist aftur að stólunum.  Tilgangurinn er eingöngu að koma í veg fyrir að fyrra sukk verði opinberað.  Þetta verður að koma í veg fyrir með öllum tiltækum ráðum, hvað sem það kostar.


mbl.is Vilja Kaupþing í Lúxemborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin - sundurfylkingin

Flokkurinn er greinilega jafnklofinn og áður.  Hvernig er nú hægt að treysta svona sundrungarflokki ??  Þessir 2 ráðherrar eiga segja af sér ekki seinna en strax.

 


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÆTTU AÐ LJÚGA - ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON

Auðvitað vissi Össur vel að bankarnir væru komnir í þennan vanda.  Annars er hann bara meðvitundarlaus í starfi - kannski vegna næturbrölts á bloggsíðunni - og á að segja af sér strax.  Þessi afsökun hans að Davíð skyldi ekki hvísla þessu beint í eyrað á honum er bara rugl.  Maðurinn hefur setið fjölda funda með samráðherrum sínum og fólk með greindarvísitölu í kringum 100 veit að hann hefur fengið upplýsingar um málið.  ISG sat víst 6 fundi ásamt fleirum með Seðlabankanum og hún hlýtur að hafa "informerað" bæði Össur og Björgvin um málið.  En þetta segir heilvita fólki bara allt sem segja þarf um Samfylkinguna og spillinguna þar.  
mbl.is Davíð á ábyrgð forystu ríkisstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TRÚVERÐUGLEIKI - JÁ SÆLL

Þegar Ingibjörg talar hér um að Davíð skuli víkja til að trúverðugleiki geti skapast, þá veit ég ekki hvort ég á að hlæja, gráta eða skrá mig í meðferð.  Dettur einhverjum heilvita manni í hug að það sé verið að segja sannleikann, þegar Össur og Björgvin halda því fram að þeir hafi ekki vitað neitt.  Þeir komu bara af fjöllum eins og jólasveinarnir.  Að sjálfsögðu vissu þeir um þessa stöðu bankanna, þeir hafa setið marga fundi með ISG á þessu tímabili og hérna opinberast enn og aftur ómerkileg lygi af hálfu þeirra sem slíku halda fram.  Hættið að ljúga og segið fólkinu SANNLEIKANN.
mbl.is 6 fundir með seðlabankastjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðstjórn strax - Davíð Oddsson forsætisráðherra

Engin spurning, nú þarf þjóðstjórn og það strax.  Ég vil strax sjá Davíð Oddsson sem forsætisráðherra og svo úrvalslið allra flokka með honum.  Með þessu má slá niður allar fyrri deilur milli DO og ISG og sameina þjóðina gegn þeim sem vilja knésetja okkur.  Í framhaldinu gera gjaldeyrisskiptasamninga við þá sem vilja styðja okkur, enda munu auðlindir okkar, núverandi og tilvonandi, bjarga okkur í gegnum þessar þrengingar.   Tilvonandi olíulindir fyrir austan eru gersemin okkar, við megum ekki glata yfirráðum yfir þeim vegna fljótfærnislegra ákvarðana.  Öll eigum við svo að hætta að tala niður krónuna, sameinast frekar um hana og hafa bjartsýni og kærleik að leiðarljósi.  Gleymum ekki börnunum okkar, þau mega ekki verða fyrir skaða í allri þessari bölsýnisumræðu.

 


mbl.is Staðan er grafalvarleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarviðtal

Jæja, enn einu Framsóknardrottningarvinaviðtalinu lokið, enn og aftur er það Davíð sem er óvinur nr. 1.  "eftir á að hyggja og svo framvegis og svo framvegis" viðtal.  Launin í geiranum voru ekki há miðað við sambærileg laun annars staðar en samt mjög há miðað við almúgann.  Hverskonar réttlæting er þetta, er maðurinn algerlega veruleikafirrtur, ég bara spyr.  Hvernig væri nú að Björn Ingi fengi Dabba í þáttinn til að útskýra sína hlið mála.  Annars er það mín skoðun að útbrunninn borgarpólitíkus, sem þarf að hrökklast frá og segja sig frá borgarmálefnum, sá sem var næstum því búinn að selja þekkingarvitið úr OR í hendur auðmanna, eigi yfir höfuð ekki að vera þess trausts verður að vera með þátt um fjámál í sjónvarpi, en þó ekki að furða að hann hafi fengið inni hjá Baugsveldinu, nema hvað ??

 


mbl.is Sigurður: Lenti illilega saman við Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það ekki líka Davíð að kenna ??

Það er ekki skrýtið þótt Kaupþingsmenn þegi nú þunnu hljóði.  Ef satt er, þá verður að ógilda þessa gerninga - ekki seinna en STRAX og endurheimta þessar fjárhæðir inn í íslenskt hagkerfi.

 


mbl.is 100 milljörðum skotið undan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB fyrirmyndarríkið ??

Bíddu nú hægur, er þetta það sem ESB sinnar horfa til ???
mbl.is 2,6 milljónir ítalskra fjölskylda lifa undir fátækramörkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband