Glæsileg framganga
4.12.2008 | 12:11
Enn og aftur sýnir maðurinn að hann er einn örfárra manna við stjórnvölinn í dag með fullu viti. Bara þannig að fólk skilji hlutina, þá eru í gildi á landinu lög um bankaleynd, Davíð hlýtur að vitna til þeirra í þessu viðtali við viðskiptanefnd Alþingis. Það sýnir bara og sannar, enn og aftur að maðurinn er a.m.k. með fullu viti, annað en fullt af því annars ágæta fólki hér á blogginu, sem er tilbúið til að brjóta lög, greinilega, til að offors þess nái fram að ganga. Einnig finnst mér dapurlegt hvernig bloggið er notað til að bölva og ragna og kalla fólk geðsjúklinga. Sumt af því er fullorðið fólk - foreldrar og afar og ömmur, fyrir mér afar döpur fyrirmynd. Þetta er skammarlegt fyrir gott tækifæri fyrir okkur bloggara til að láta rödd okkar ná í gegn. Það tekur hinsvegar enginn viti borinn maður mark á slíkum upphrópunum.
![]() |
Davíð ber fyrir sig bankaleynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stórábyrgð Samfylkingarinnar
4.12.2008 | 11:37
Enn og aftur er það hér upplýst að meðvitundarleysi Samfylkingarinnar er algert. Formaður flokksins hefur upplýst að hún hafi setið 6 fundi með Seðlabankastjóranum, þar sem við þessu var varað. Ef Björgvin er ekki með svartan blett á tungunni, þá hlýtur málum að vera svo komið að Ingibjörg Sólrún hefur ekki sagt sínum eigin ráðherra frá þessum áhyggjum Seðlabankastjórans. Fyrir mér er þetta dæmi um algert meðvitundarleysi, sem ég er nú farinn að hallast að að sé gert af ásettu ráði. Getur verið að ánetjun draumsins um Himnaríki (sem ég vil nú frekar líkja við hið gagnstæða) ESB, sé orðin svo sterk, að allar aðvörunarbjöllur hagkerfis landsins megi bara klingja, krónan skal víkja hvað sem það kostar og þjóðin skal teymd á asnaeyrunum þarna inn. Þessu verður ISG að gjöra svo vel og svara. Þjóðin á heimtingu á því.
![]() |
Hitti Davíð ekki í tæpt ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Uppgangurinn vonandi hafinn
4.12.2008 | 10:30
![]() |
Krónan styrkist um 1% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ESB kjaftæði - frá hagsmunasamtökum hverra ??????
3.12.2008 | 08:41
Alveg með ólíkindum að lélegustu hagsmunasamtök landsins, neytendasamtökin, skuli koma fram með þessa kröfu, byggða á engu öðru en dylgjum og spámennsku. Hér kemur engin röksemdafærsla fram, bara einhverju kastað út í loftið til að láta taka eftir sér. Hafa þessi samtök svo mikið sem rætt við VENJULEGA neytendur í ESB löndunum í kringum okkur og kannað þeirra afstöðu, hvernig því líður. Nei, ekki frekar en þau hafa barist fyrir neytendur á Íslandi í gegnum tíðina. Alveg með ólíkindum hversu handónýt þessi samtök eru í baráttumálum neytenda. Hafa þau, svo dæmi sé tekið, kafað djúpt í það hvernig innflytjendur vöru á síðastliðnum árum (þegar krónan var sterk og var besti gjaldmiðill í heimi) misnotuðu stórlega aðstöðu sína, reiknuðu vöru sína sjaldan á réttu tollagengi og græddu því ótæpilega á allri velmeguninni sem hér ríkti. Nei, maður hefur aldrei séð þessi draslsamtök beita sér á þessu sviði. Gott dæmi er þessi svívirðilega einokun á matvörumarkaði, svo ekki sé minnst á fjölmiðlamarkaðinn.
![]() |
Sótt verði um aðild að ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ESB skyndilausn ????
2.12.2008 | 19:34
Mér líst ágætlega á flestar þessara tillagna, en ein stingur þó í stúf !!! Ég get einfaldlega ekki verið sammála því að sækja eigi strax um aðild að ESB án þess að fyrir liggi upplýsingar um það hverjir þjóðarhagsmunir eru við inngönguna. Það er ekki nóg að segja að krónan sé of lítil fyrir okkur, margir hagfræðingar og frammámenn í viðskiptalífinu telja að það kosti okkur miklu meira að ganga í sambandið, heldur en að standa utan við það. Auk þess megum við ALDREI missa yfirráðin yfir auðlindunum til Brussel. Ég er talsmaður þess að umræður um ESB séu uppi á borðinu, kostir og gallar vegnir, en ákvörðunina um inngöngu verður að taka út frá hagsmunum íslenzku þjóðarinnar. Svo einfalt er það.
![]() |
Viðskipta- og hagfræðingar afhenda stjórnvöldum tillögur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ósk um nýtt málgagn ESB andstæðinga - MBL hefur brugðist - því miður
2.12.2008 | 11:32
Ég er algerlega sammála Styrmi þegar hann segir að hinn þögli meirihluti okkar sjálfstæðismanna sé á móti ESB aðild. Ég er líka orðinn verulega pirraður á ritstjórnarstefnu Morgunblaðsins, og er alvarlega farinn að íhuga að segja því upp, hef þó verið áskrifandi í tugi ára. Þessi einsleiti fréttaflutningur og klisjumálflutningur er óþolandi og vonandi verður þessum fréttastjóra sparkað og nýr fenginn að þegar útgáfu blaðsins verður tryggður áframhaldandi rekstur, með aðkomu nýrra eigenda. Ef ekki, þá er það krafa mín að Heimssýn þurfi að fara af stað með útgáfu dagblaðs, þar sem sannleikurinn um ESB lítur dagsins ljós. Það verður að upplýsa fólk um ókosti ESB aðildar, sem ég tel vera mun fleiri en kosti, en því miður virðast blaðamenn, bæði Mbl og Fréttablaðsins ekki hafa áhuga fyrir því.
![]() |
Lykilorusta um ESB-aðild háð á landsfundi Sjálfstæðisflokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvar er lögregla landsins
1.12.2008 | 16:37
Nú verður maður að krefjast þess að yfirvöld grípi í taumana. Hef verið sammála því að fólk geti mótmælt friðsamlega, en nú eru þetta orðin skrílslæti, og svona ofbeldi verður að stöðva. Venjulegt heiðvirt fólk hlýtur að krefjast þess að svona yfirgangur verði stöðvaður og ofbeldismenn teknir úr umferð.
![]() |
Réðust inn í Seðlabankann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Framsóknarmafían
28.11.2008 | 20:57
Hér á ég, sem betur fer, ekki hagsmuna að gæta. En hugur minn er hjá öllu því góða fólki sem stóð með þessu félagi alla tíð. Framsóknarmafían er söm við sig, búin að ræna heiðarlegt fólk, með hjálp vina sinna í Kaupþing. Þetta mál verður að rannsaka STRAX.
![]() |
Vilja opinbera rannsókn á fjárþurrð Giftar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gylfi ! Hunskastu sjálfur í burtu
27.11.2008 | 13:35
Gylfi Arnbjörnsson á sjálfur að hunskast í burtu, hvar var þessi maður þegar laun ofurforstjóranna og bankastjóranna voru til umræðu, af hverju beinir hann ekki kröftum sínum í þágu vinnandi fólks, t.d. í umræður um verðtrygginguna o.s.frv. Hann hefur ekki hjálpað launafólki síðustu árin, sennilega verið sjálfur á kafi í sukkinu eins og starfsbróðir hans hjá VR. Segðu sjálfur af þér Gylfi !!!
![]() |
Undrandi á forseta ASÍ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Glæsilegt Björn Bjarnason
26.11.2008 | 17:57
Loksins kom það fram sem ég held að stór þögull meirihluti þjóðarinnar, sem ekki lætur teyma sig áfram í skoðanakönnunum, telur að sé forgangsatriði. Og mér finnst sérstaklega glæsilegt að skammarræða Björns Bjarnasonar yfir SJS í gær á Alþingi hefur greinilega hreyft við hlutum. Komið honum til að skilja það að ef hann vill vera alvöru stjórnmálamaður þá á hann að fylgja eftir góðum þörfum málum, ekki alltaf vera á móti bara til að vera á móti.
![]() |
Víðtækar rannsóknarheimildir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |