VÍST orskaðirðu hrunið

Ó jú, Ingibjörg, þú gerðir það með undirlægjuhætti við útrásarfuglana, gagnrýnislaust, og með dyggri aðstoð Bessastaðabóndans.  Ekki reyna að þvo hendur þínar af þessu klúðri, það var margbúið að tyggja það í þig að bankakerfið væri að hruni komið, en þú hlustaðir ekki.  Meðvitunarleysi þitt birtist núna landsmönnum í skuldaklafa til margra ára.  Valdagræðgin sem hefur alltaf einkennt ykkur í Samfylkingunni á stóran þátt í því hvernig komið er fyrir íslenzkri þjóð.  Og fyrir alla muni, ekki klúðra meiru með því að troða okkur inn í ESB - sovétveldið nýja.  Þjóðin á eftir að rísa upp til varnar og segja NEI TAKK.


mbl.is Ingibjörg: Orsökin liggur í ofsafrjálshyggjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú átt minn stuðning

Engin spurning, hann á minn stuðning og ég mun versla hjá honum ef hann fer af stað með þetta dæmi.  Kominn tími til að lágvöruverslanir fái alvöru samkeppni.

 


mbl.is Hyggst stofna lágvöruverðsverslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt

Verð að lýsa ánægju minni með þetta framtak, hvort sem það er Björns, eða allrar ríkisstjórnarinnar.  Þessi mál þarf öll að rannsaka og verða að líta dagsins ljós.
mbl.is Embætti sérstaks saksóknara auglýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEI TAKK

Þeir geta búið sig undir einhverja umsókn, ég dreg stórleg í efa að við komum til með að sækja um, skilyrðin eru ekki og verða ekki Íslendingum í hag. 


mbl.is ESB býr sig undir umsókn frá Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítill maður

Það er nú meira hvað líffræðingurinn og iðnaðarráðherrann er reiður þessa dagana.  Hann hafur aldrei verið með fulla meðvitund og það hefur einfaldlega aldrei verið hægt að trúa því að hann sé alvöru stjórnmálamaður.  Hann hatar náttúrulega Davíð, sem er margoft búinn að rassskella hann í beinni útsendingu, og það eina sem kemst að í höfði þessa manns er að hatast út í Seðlabankastjórann.  Hann hefur a.m.k. verið meðvitundarlaus frá því hann settist í ráðherrastól.  Farðu nú Össur, fyrst þú vilt ekki drattast til að segja af þér, að segja eitthvað af viti, hættu að blogga fram eftir nóttu og farðu að sofa fyrir kl. 22. 
mbl.is Bókunin frá Össuri komin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fá allir gestir að nota símann ????

Nei mér datt það bara í hug, ef símakostnaðurinn er 19 þús. á dag.  Það myndi eitthvað heyrast á mínu heimili !!!!!!
mbl.is Forsetaembættið mótmælir frétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veljum Íslenskt

Þarf að segja meira ????????????
mbl.is Funda vegna írsks svínakjöts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur hræðist stigmagnandi ESB andstöðu

Aumingja Össur,  enn og aftur þykist hann ekkert muna og hér birtist enn og aftur meðvitundarleysi hans við stjórn mála.  Auðvitað á ábyrgur stjórnmálamaður að vera fyrir löngu búinn að gera sér grein fyrir því í hvert stefndi.  Ekki átti Davíð að labba með þetta allt saman og troða því í kokið á honum.  Þetta var nú einu sinni formaður Samfylkingarinnar og með þann bakgrunn ætti maðurinn að gera rannsakað hlutina sjálfstætt og á sínum eigin forsendum.  Næsti maður á bás við hann er bankamálaráðherrann, samflokksmaður Össurar.  Ég skil bara ekki hvað við erum að gera með svona fugl í ráðherraembætti.  Mér líst ekki á framhaldið ef hann verður iðnaðarráðherra eitthvað áfram.

Mér finnst þessi gagnrýni öll á Davíð frá Samfylkingunni bera þess merki að þau hræðist það sem ég upplifi hér á bloggheimum,  mjög stígandi og ört vaxandi andstöðu við aðild Íslands að ESB.


mbl.is Eitthvað rotið í Seðlabankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverslags yfirgangur er þetta eiginlega.

Hvað á slíkur hroki og yfirgangur eiginlega að þýða.  Í hvers umboði vinnur þessi maður.  Snúðu þér að þínum eigin vandamálum Matti, láttu okkur Íslendinga sjálfa um að ákveða hvort við viljum tengjast þessari ESB klíku.  Ef svo verður, þá skaltu biðja ESB um að undirbúa sig.  Fyrr ekki.  Og hafðu það.  ESB má ekki takast að gleypa okkur meðan við erum enn liggjandi.


mbl.is Biður ESB að undirbúa aðild Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonin um að Davíð snúi til baka í pólitík

Já, ekki að spyrja að, blessunin farin að styrkjast, sennilega eftir fréttirnar í morgun.  Vonandi heldur hún áfram á sömu braut, landi og þjóð til mikillar farsældar.  Eini maðurinn sem getur komið okkur úr þessu ástandi er að sjálfsögðu Davíð Oddsson.  Hann hafði, því miður, alltaf rétt fyrir sér.  Þetta verður fólk bara að viðurkenna.
mbl.is Krónan styrkist um 4%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband