Bíddu við ??
22.12.2008 | 19:21
Ber ekki að þakka fyrir ef álögur okkar hækka ekki nú á tímum ??. Hverslags málflutningur er þetta hjá minnihlutanum. Er skattpíningin ekki nóg fyrir. Er Samfylkingin búin að gleyma hversu mikið skuldir borgarinnar hækkuðu í tíð R-listans.
Alfredo framsóknar hækkaði heita vatnið einn góðan veðurdag. Rökin voru þau að það var búið að vera of heitt í veðri og vatnsnotkunin lítil.
Svona R lista óstjórn kemur vonandi aldrei aftur.
Þessi málflutningur er fyrir neðan allar hellur.
![]() |
Segja meirihlutann í borgarstjórn ótengdan veruleikanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hver stjórnar Viðskiptaráði ????
22.12.2008 | 14:44
Hefur Viðskiptaráð engar áhyggjur af samþjöppun á fjölmiðlamarkaði. Ég hef ekki séð Viðskiptaráð gagnrýna fákeppnina í heimi hinna einkareknu útvarpsstöðva.
Ég er algerlega á móti því að einum yfirburðarmarkaðsráðandi aðila verði veittur yfirráðaréttur yfir öllum auglýsingamarkaðnum. Þeir hafa sýnt það, svo ekki verður um villst, að þeim er ekki treystandi til að segja sannleikann.
![]() |
Frestun frumvarps um RÚV misráðin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fær kannski vinnu hjá Baugi ????
18.12.2008 | 10:24
Tryggvi hlýtur að labba til Jóa og Jóns og fá vinnu. Það þarf enginn að segja mér annað en að þeir, sem létu hann sjá um skítverkin fyrir sig, skjóti nú yfir manninn skjólshúsi og reddi honum einhverju starfi.
Annars veit maður aldrei, sagt er að þeir stingi alla í bakið, sama hversu velviljaður viðkomandi er gagnvart þeim.
![]() |
Tryggvi hættur í Landsbankanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er þetta nokkuð símtal frá forsetaembættinu ????
17.12.2008 | 16:34
Landsfundurinn verður SVAKALEGUR
17.12.2008 | 15:03
![]() |
Frekar kosningar en að láta undan dulbúnum hótunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þorgerður á að segja af sér
17.12.2008 | 13:30
![]() |
Formaður Sjálfstæðisflokks eyði misskilningi um landsfund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dottinn í'ða eina ferðina enn ??
17.12.2008 | 11:05
Karlræfillinn á nú ekki sjö dagana sæla, farinn að rugla aftur um miðja nótt sýnist mér (kl 1.57) Það hlýtur að halda verulega fyrir manninum vöku, hversu hratt nú opinberast sukkið í kringum Samfylkinguna. Flokkurinn sem barðist harðast gegn fjölmiðlafrumvarpinu á sínum tíma.
Og svo kemur Reynir Traustason - hinn trausti - er nú lygari - og allt traustið hrynur - og Össur fer á flug um miðja nótt.
Nú ber að verja Bessastaðabóndann - hinn fyrrverandi virta fjármálaráðherra - eða hitt þó heldur - og núverandi klappstýru auðmannanna fyrir að (mis)nota síma embættisins sem nemur 19.000 kr. á dag.
Össur - þú verður aldrei marktækur stjórnmálamaður.
![]() |
Bókhaldsgögnum forseta stolið? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ESB andstaðan vex
16.12.2008 | 16:19
![]() |
SA beita sér ekki fyrir aðild Íslands að ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sannleikanum hagrætt
16.12.2008 | 15:18
Enn einu sinni er hér sannleikurinn aukaatriði, Tryggvi hefur setið í stjórnum fjölda leppfyrirtækja á vegum Baugs. Ég trúi því varla að háskólamenntaður maðurinn láti frá sér annað eins bull, og trúi því sjálfur. Hann hefur heldur betur verið heilaþveginn á Baugsnámskeiðunum. Farið bara á Silfur Egils og sjáið stjórnarsetu mannsins. Megnið af því er eftir 2002 - alveg til 2005.
Er sannleikurinn bara orðinn algert aukaatriði í samfélagi mannanna.
Nú vil ég fá erlenda óháða rannsókn á þessu rugli öllu STRAX.
![]() |
Tryggvi: Kem ekki nálægt Baugi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Aumur vesalingur rúinn trausti
16.12.2008 | 08:34
Já það er merkilegt hvernig lygin getur leikið fólk, Reynir Traustason með nærbuxurnar á hælunum. Þetta er nú sá sem gagnrýndi fjölmiðlafrumvarpið hvað mest, en alltaf skulu hlutirnir koma í bakið á fólki sem hefur óhreint mjöl í pokahorninu.
Þú átt að skammast þín Reynir og draga þig til hlés. Hér eftir verður ekki orð að marka það sem þú segir. Þú hefur því miður oft talað gegn betri vitund.
![]() |
Upptaka af útskýringum ritstjóra DV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |