Viltu ekki opna öll leyni- ehf- félögin fyrst

Menn hljóta að óska eftir því að maðurinn opni fyrst leyni-skattaskjóls-félögin sín erlendis ???
mbl.is Eiga 650 m. evra inni hjá gamla Kaupþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir hafa efni á því ??

Þeir hljóta að hafa efni á því að borga lögmannskostnaðinn ef þetta eru ofurlaunagosarnir ???

Hef enga samúð með þeim - því miður.


mbl.is Flestir framkvæmdastjórar bankanna ætla í mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær stíga Siggi Einars og Hreiðar fram ??

Væri gaman að sjá þá koma líka fram og viðurkenna mistök sín. 

Það munu þeir framsóknarklíkumenn sennilega aldrei gera.


mbl.is Endurgreiddi 370 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frá spillingu til spillingar

Kallinn hoppar á milli spillingarflokka,  annarsvegar flokksins sem haldið hefur hlífiskildi yfir Baugsveldinu, yfir í flokkinn þar sem útrásarvíkingarnir réðu öllu. 

Ætli hann endi ekki á Bessastöðum ??


mbl.is Guðmundur í Framsóknarflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáum við eitthvað að vita ??????

Getur verið að einhvern tímann á næstunni fái almenningur í landinu að vita hvað verið er að rannsaka.  Væri ekki ráð að segja frá því hverjar grunsemdir rannsakendanna eru.  Það myndi friða almenning a.m.k. í bili.  Þetta óvissuástand er algerlega óþolandi. 

Hvernig gengur t.d. með rannsóknina á fjármagnsflutningunum frá gamla Kaupþing til útlanda ??  Er ekki hægt að upplýsa okkur, sauðsvartan almúgann, hvort verið var að færa peninga til starfsmanna bankans, vildarviðskiptavina, alþingismanna - eða til aðila tengda þeim, til yfirmanna stofnana ríkisins, auðmanna (t.d. Jóns Ásgeirs, Finns Ingólfssonar, Ólafs Ólafssonar, Sigurðar Einarssonar, Hreiðars Más, Kristjáns Arasonar, eða annarra aðila.  OG ÞÁ HVERRA ???  Eru þetta aðilar tengdir gömlu framsóknarmafíunni  ???

Við verðum að fá að vita hverjir eiga þessa leynireikninga erlendis  ???  Það er krafa almennings að fá að vita hverjir þetta eru - NÚNA


mbl.is Rannsaka fjárfestingar sjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

8 ára barn ? - Skammist ykkar

Vil nú taka fram að ég er hlynntur friðsamlegum mótmælum.  Að sjálfsögðu.  En í öllum bænum reynið nú að hlífa börnunum, mótmælendur.  Ekki fara niður á þetta lágkúrulega plan.  Hvað segir Hörður Torfason um þetta, finnst honum þetta sjálfsagt.  Lærði hann ekkert af því einelti sem hann varð fyrir á sínum tíma og þurfti að flýja land.

Vonandi tekur Hörður, sem skipuleggjandi mótmælanna, nú í taumana og kemur í veg fyrir þetta.

 


mbl.is Mótmælaróður hertur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömurleg tilhugsun - Baugsmogginn ????

Það er ömurleg tilhugsun fyrir alla frjálsa umræðu ef allt fjölmiðlaveldi á Íslandi verður á hendi einnar fjölskyldu. 

Þá vil ég endurvekja gömlu flokksblöðin, ég held að gamla Þjóðviljalygin sé hreinn og beinn barnaskapur samanborið við það sem nú tíðkast, því miður.

 


mbl.is Viðræður um sölu á Árvakri að hefjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Milljörðum skotið undan - hættum að versla við þá !!!!!!

Var að lesa um það á textavarpinu að öruggt væri að milljörðum hefði verið skotið undan til skattaparadísa fyrir hrun bankanna, að sögn skattrannsóknarstjóra.  Sem mann hafði svosem lengi grunað.

Nú óskum við, þ.e. þeir Íslendingar sem þurfum að hreinsa upp skítinn eftir þessa útrásarfugla og sukkara, eftir því að fá upplýsingar um það hverjir þessir einstaklingar eru.  Í framhaldinu skora ég á alla að hætta að versla við fyrirtæki þessara manna á Íslandi.  Ef t.d. Jón Ásgeir verður uppvís að þessu, nú þá eiga menn að hætta að versla við Bónus og Hagkaup.  Ef Ólafur Samskipaforstjóri er uppvís að þessu, nú þá eiga menn að hætta að flytja vörur með Samskip.   Ef Bjöggi Thor er uppvís að þessu, nú þá skora ég á íslenzka ríkið að hætta að niðurgreiða lyf frá Actavis. Og þannig koll af kolli.  Ef þetta eru Sigurður Einarss og Hreiðar, nú þá á bara að reka þá úr landi, enda eru þetta landráðamenn. 

Og gera eignir þessara manna upptækar - STRAX.

Nú verðum við að sýna það í verki, landsmenn, að við munum ekki líða þessum mönnum að komast upp með þetta.  Þeir skulu ekki fá að sitja að milljörðunum, en við hin borga.  Nei takk.


Af hverju lækkar ekki verðið á Íslandi meira ???

Komið nú með haldbæra skýringu á þessu strax, olíu- og bensínsalar !!!!!!


mbl.is Olían lækkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mistök - Nei takk

Mistök og afsökunarbeiðni - er þetta Spaugstofan ?? 

Ég frétti af 72ja ára gömlum manni sem missti 30 milljónir í þessum sjóðum.  Honum var eindregið ráðlagt að kaupa í sjóði í stað þess að geyma ævisparnaðinn á öruggri bók.  Ég hef persónulega ekki tapað mínum sparnaði, sem betur fer.

En ég hef gríðarlega samúð með öllum Íslendingum sem því miður voru blekktir af misvitrum bankamönnum, sennilega dyggilega hvattir af eigendum sínum.

Mistök og afsökunarbeiðni er ekki nóg.  Við eigum rétt á því að vita til hvers þessir fjármunir voru notaðir.  Það verður að framkvæma erlenda, óháða, rannsókn STRAX.  Það verður aldrei fallist á það að útrásarvíkingarnir fái hér allt upp í hendurnar aftur og skuldir þeirra verði afskrifaðar.  Fólkið í landinu, sérstaklega þau sem hafa misst allan ævisparnaðinn sinn á þessa skilyrðislausu kröfu.  Ráðamenn mega ekki glata tækifærinu sem býðst núna til að rannsaka allt sukkið sem fram fór á vegum bankanna. 


mbl.is NBI og Landsvaki viðurkenna mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband