Stærsta spillingarmafían - FRAMSÓKN
21.1.2009 | 22:57
Það er ekki skrýtið að Framsóknarflokkurinn, í kjölfar hreinsunarinnar, sem engin er, komi núna fram og bjóði vinstri stjórn stuðning sinn.
Málið er að spillingin tengist svo mjög Framsóknarflokknum, tökum sem dæmi milljarðamillifærslurnar úr Kaupþingi gamla, allt tengt Framsóknarmafíunni (S hópnum - Finnur Ingólfsson, Ólafur Ólafsson, o.s. frv.)
Auðvitað vill flokkurinn fyrir alla muni komast að til að hylma yfir þessa spillingu og öflin tengd flokknum haldi áfram yfirráðum yfir fyrirtækjunum sínum, sem þeir flestir hafa meira eða minna keyrt í þrot með endalausum erlendum lántökum og stöðu gegn íslensku krónunni.
Nei, Jónína Benediktsdóttir, þú ættir nú manna best að vita það að fólk sér í gegnum þennan leikaraskap. Það hefur þú gert fram að þessu og ég bið þig um að halda áfram að standa vörð um sannleikann. Ofangreindum mönnum er alls ekki treystandi og á meðan ég sé ekki sönnur fyrir því að þeir séu horfnir á braut úr Framsóknarflokknum, þá treysti ég aldrei X-B.
Að sjálfsögðu viljum við að kosningar fari fram svo þjóðin geti gert þessi mál upp. En það þýðir ekki að gera það á þessum forsendum þannig að almenningur eigi á hættu að Kaupþingsmafían geti mokað holuna og kastað viðbjóðnum í hana og kveikt í þannig að málin verði ekki á endanum rannsökuð.
Kjósum heldur næsta vetur eftir að 1. áætlun um endurreisnina er lokið í samstarfi við IMF og vonandi að rannsóknarnefndin verði búin að fletta ofan af spillingunni í bankakerfinu.
![]() |
Vill verja minnihlutastjórn falli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað segja ESB sinnar nú ????
21.1.2009 | 14:38
Danmörk er í ESB.
ESB er fyrirheitna land sumra, bara af því að þeir vilja eitthvað annað.
Hvað segja þeir nú, ESB sinnar, þegar allt er að fara í kalda kol í Evrópu ???
Verum bara sjálfstæð áfram !!!!
![]() |
Fasteignaverð hrynur í Kaupmannahöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Já, næsta frétt á eftir er um 3 menn sem voru handteknir með kókosbollur.
Hvenær verða þessir útrásarvíkingar handteknir og settir á bak við lás og slá ?????
Hvar eru lög og réttur í þessu landi, eiga þessir menn bara að ræna öllu frá okkur hinum og komast upp með það ? Koma síðan aftur eftir nokkur ár og kaupa allt til baka fyrir stolið fé ??
![]() |
Milljarðalán án áhættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Já, en vill ekki 61% Breta út !!!
19.1.2009 | 17:16
Hvað segir hagfræðingurinn við því, skoðanir þessara manna eru svo misjafnar, þótt hagfræðingar heiti, að það er ekki lengur nokkurt mark takandi á þessum fuglum.
Kom þessi maður til landsins og varaði við ??' Þeir geta allir talað um hvað hefði átt að gera, eftirá, en ekki fyrir eða á meðan á því stóð.
Þetta sjónarmið sumra að vilja okkur inn í ESB finnst mér vera byggt á einhverju öðru en umhyggju fyrir íslenskri þjóð !!! Ég hef á tilfinningunni að þetta séu útsendarar ESB að reyna að kollvarpa okkur endanlega með sína hagsmuni að leiðarljósi.
Enda eru fullt af ESB þjóðum að lenda í sömu málum og við, Írland, Portúgal, Grikkland, Spánn o.s. frv.
![]() |
Voru í raun án Seðlabanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Var ekki Guðni búinn að færa hann til vinstri ???
19.1.2009 | 15:03
Guðni Ágústsson hefur nú aldrei verið hægri-maður. Var hann ekki búinn að reyna að færa flokkinn frá hægri, langt til vinstri.
Er ekki bara málið að það eru slík spillingaröfl innan flokksins, sennilega mestu ultra-hægrimenn sem fyrirfinnast, að þetta verður alltaf vonlaust verk hjá Sigmundi.
Nema hann taki sig til og reki þennan S-hóps pakka allan úr flokknum eins og hann leggur sig.
![]() |
Vill færa flokkinn frá hægri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er spilling í himnaríki (ESB) ??
16.1.2009 | 13:56
Ég sem hélt að við værum laus við alla spillingu ef við gengjum í ESB - þannig hafa hvatamennirnir talað ??????????
![]() |
Alda mótmæla breiðist út um A-Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Setjið manninn á 200 þúsund kallinn
16.1.2009 | 12:25
Er þetta ekki skattfrjálst. Og allur kostnaður greiddur af ríkinu hvort sem er.
Varla þarf hann meira en 200.000 til að leggja inn á bók á mánuði.
Ég meina 1500 þús á mánuði fyrir að dásama útrásina, í hvaða leikriti er þessi þjóð stödd ??
![]() |
Laun forseta verða lækkuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Shut up !!!!!
16.1.2009 | 10:18
Er hægt að benda mér á eina litla setningu þar sem þessi maður hefur gagnrýnt Baugsveldið. Ef svo er þá er ég tilbúinn að rétta viðkomandi 5.000 kr. - sagt og skrifað fimmþúsund krónur. Þessi maður hefur hatast út í Davíð, sem rassskellti hann um árið, og stillt sér upp Baugsmegin í tilverunni ásamt 90% af Samfylkingunni (þ.e. spillta hlutanum)
![]() |
Segir gagnrýni á Hallgrím ósanngjarna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hagsmuna hverra gætti formaður VR ????????
10.1.2009 | 21:15
Sat ekki Gunnar Páll í stjórn Kaupþings ?? Tók hann ákvörðun um að gera samninga við stærstu eigengur bankans um gjaldmiðlasamninga, þar sem þeir tóku stöðu gegn krónunni ? Ef svo var, hverra hagsmuna var hann að gæta, Kaupþings eða íslenzkra launþega ??
Ég óttast að mikill skítur eigi eftir að koma undan Kaupþingsteppinu, þangað sem honum var öllum sópað.
Formaður stærstu launþegahreyfingarinnar í landinu í stjórn VR og samþykkir samning gegn sínu eigin fólki og sinni eigin þjóð ??
Mér er svo óglatt núna, ég þarf að hætta.
![]() |
Rannsókn nauðsynleg vegna galdmiðlaskiptasamninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heyr, heyr !!!
8.1.2009 | 14:45
Tæpitungulaus ræða hjá bæjarstjóranum, hvert einasta orð sannleikur. Get ekki verið meira sammála manninum.
![]() |
Ekki borga skuldir bankahrunsins segir bæjarstjórinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |