Er forsetinn líklegur til að skapa samfélagslegan frið ???
26.1.2009 | 18:07
Ef svo er, þá les ég mjög vitlaust í þessa stöðu. Maðurinn hefur aldrei verið forseti allrar þjóðarinnar og það mun ekki skapast friður um þetta embætti fyrr en sú persóna sem því gegnir fer frá völdum.
Vil sjá mótmælendur (friðsama) sameinast um að mótmæla við Bessastaði, Bónus, Samskip, Iceland Express og fleiri staði útrásarvíkinganna.
![]() |
Skapa þarf samfélagslegan frið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ragnheiður Rikharðsdóttir, af einhverskonar femíniskum sjálfsathyglissjúkum hvötum, ryðst nú fram sem áður, og heimtar Davíð Oddsson burt. Hún er ekki spurð hvers vegna hann eigi að víkja, hún þarf ekki að rökstyðja neitt, heldur kemst hún upp með það að vekja á sér athygli með ummælunum einum saman.
Hún hefur ekki sýnt neitt af sér á þingi þessi manneskja og er að mínum dómi afar lítill mannkostur og henni mun ég aldrei treysta til að sitja áfram á þingi og vera í forsvari þjóðarinnar á nýjum tímum.
Þessvegna skora ég á alla stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem kjósa í hennar kjördæmi í vor, að gera alvöru úr því að strika nafn hennar af listanum. Það eru makleg málagjöld sem þessi stjórnmálakvenleysa á skilið.
Burt með svona sporgöngumenn af þingi.
Og segðu strax af þér þingmennsku og fáðu varamanninn inn. Virðingingarvísitala þíngsins myndi hækka verulega við þann gerning.
Virðingarvert - hugsaðu næst áður en þú gasprar !!!!!
24.1.2009 | 16:18
![]() |
Baðst afsökunar á ummælum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Frábært - frábært
23.1.2009 | 21:35
Glæsileg barátta þín , Vilhjálmur, hefur þá skilað þessari niðurstöðu. Þó er ég enn uggandi þar sem þessir fuglar hafa áfrýjað málinu, vonandi verður niðurstaðan staðfest.
Fyrir mér er þetta fyrsta skrefið í því að það sem ég vil kalla Stóri - Glæpur gegn íslenzku þjóðinni verði opinberaður.
Óska þér til hamingju með að hafa unnið fyrri hálfleik. Vonandi get ég fagnað með þér eftir þann seinni.
![]() |
Gætu þurft að greiða út 35 milljarða króna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mótmælendaræfill - slæm birtingarmynd
23.1.2009 | 20:30
Því miður lýsir þetta hugarástandi lítils minnihluta ræfla sem eru litlir menn.
Þvílíkur karakter þessi mótmælandi. Í sama flokki og Hörður Torfason = AUMINGI
![]() |
Ekki farin að finna til með honum ennþá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Úrhrak aldarinnar - þvílíkur manndómur Hörður !!!!
23.1.2009 | 15:33
Til hamingju Vilhjálmur, þú ert maður fólksins !!!!!!!!!
23.1.2009 | 12:58
Vil bara óska þér til hamingju Vilhjálmur, þó þetta sé bara byrjunin, væntanlega áttu eftir að ganga grýtta braut og margir útrásarvíkingar tilbúnir til að bregða fyrir þig fæti.
Við, sem höfum horft upp á þessa spillingu lengi, munum að sjálfögðu veita þér allan þann styrk sem við getum.
það verður að koma þessum svikahröppum bak við lás og slá.
![]() |
Vilhjálmi dæmdar bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Breskur hroki !!!!!!!
22.1.2009 | 12:09
Ég held að þeir ættu frekar að þakka fyrir lopann sem landinn er að senda þeim. A.m.k. geta þeir ekki byggt almennileg hús og því þurfa gamalmennin að deyja úr kulda þó það komi smá hret. Geta ekki einu sinni bjargað því sjálfir.
Enda eru þessir bresku pappakofar bara rusl og einskis virði.
Hvað halda þessir forljótu nágrannar okkar að þeir séu eiginlega. Allir hálf tannlausir og úrkynjaðir.
![]() |
Bretland er ekki Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
HEYR - HEYR
22.1.2009 | 11:12
Loksins, loksins kom að því, nú kemur maðurinn fram og í raun viðurkennir að hafa ekki verið frjáls síðustu árin. Auðvitað hefur allur skynsamur almenningur skynjað þetta, en óttavaldið og húsbóndavaldið valdið því að Sigmundur, eins og svo margir aðrir, t.d. Egill Helga hafa ekki sagt orð fyrr en núna.
Til hamingju Sigmundur Ernir, einn besti blaðamaður landsins, nú ertu frjáls undan þessari glæpaklíku.
Ég hlakka virkilega til að heyra þínar skoðanir á næstunni og er sannfærður um að þú getur núna loksins leyst frá skjóðunni. Þú veist um margt misjafnt og þjóðin bíður eftir því að heyra sannleikann.
![]() |
Frjáls undan oki auðjöfra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað á þessi skríll að komastu upp með ???
22.1.2009 | 11:06
Það er með ólíkindum langlundargeð íslenzkra lögreglumanna. Ég skal hneigja mig djúpt fyrir þessari stétt manna og kvenna sem lætur þennan ofbeldislýð komast upp með það sem ég sá á myndum í gær. Sýnir mér enn og aftur að lögrelan er mönnuð úrvalsfólki sem hefur ekki yfirgang og ofbeldi að markmiði.
Ofbeldisfullir mótmælendur: "SKAMMIST YKKAR"
![]() |
Lögreglumaður enn á sjúkrahúsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |